Okei, málefnalegt blogg.
Engin stafsetningavilla eða annað aumingjalegt í tilefni af
íslenskuprófi á morgun.
Búinn að læra vel fyrir það og tel mig ágætlega undirbúinn. Ég var
í geðveiku bloggstuði í gær en ekki í dag. Því miður.
En!
Ég fór á Stiðarvauk í gær (sbr. Woodstock, Stockwood eða eitthvað)
að fylgjast með fólkinu mínu.
Finnur, Nökkvi, Ninna og Gísli ákváðu
að sameina krafta sína og spila 2 lög með Radiohead, lögin sem urðu
fyrir valinu voru
High and
Dry og
Karma Police
sem Helga Maggý hafði áður sungið mjög eftirminnilega. Það er ekki
annað hægt að segja en að þau hafi sloppið frábærlega frá því, enda
valin efnilegasta hljómsveitin og fengu að launum ömurleg verðlaun.
Bubba - disk.
Hálfvorkenndi þeim.
Byrjaði þó að vorkenna sjálfum mér meira daginn eftir (dagurinn í
dag), lærði frá 11 - 16 fyrir íslenskupróf. Tel mig dugnaðarfork.
Svo vorkenndi ég sjálfum mér ennþá meira þegar ég komst að því að í
staðinn fyrir að fara á Subway með Andra bróður, þá fékk SLÁTUR í
staðinn, en hvað það er hörmulegt. Og ég kann á þvottavél.
Svo hitti ég
Kamillu Sól í fyrsta skipti
síðan að fyrsta bókin um Ísfólkið kom út, það var ánægjulegt þó að
hún hafi að lokum drepið mig niður með að fara ekki að hlæja að
sögunni minni, einni af mörgum.
Að lokum fórum við uppí Strax / Súper og ég fékk mér
Trúðaís,
var litinn hornauga af einhverjum bavíana sem kallaði mig
"hyper". Helvítis asni, þú ert bara forljótur. Eða eitthvað.
En það eyðilagði ekkert,
Trúðaísinn
var bestur.
Árshátið MA á morgun, vííí. Gaman, gaman. Jagúar spila, vííí.
Gaman, gaman.
Vá, eitt mesta un-emo blogg í mannkynssögunni, Kári og Egill, farið
í rassgat!
Kveð með íslensku í hjarta,
Daníel Smári Magnússon.
P.S -
Nökkvi sæti